MEÐFERÐARAÐILI

Þjónusta

BOWEN

Bowen

60 min 12000 kr Bókaðu núna

Bowen fyrir ungabörn

60 min 0 kr Bókaðu núna

Reiki Heilun

Reiki Heilun

60 min 12000 kr Bókaðu núna

Ásdís Björg

Ásdís Björg Jóhannesdóttir vinnur sem Bowentæknir en hún lauk námi frá College of Bowen Studies (2021) undir leiðsögn frá Jórunni Símonardóttur og hefur unnið í Heilsumiðstöð Reykjavíkur síðan í apríl 2021.

Hún hefur mikinn áhuga á öllum heilsutengdum málefnum og mataræðistengdum vandamálum og leitast við að finna lausnir fyrir hvern og einn á heildrænan hátt.

Ásdís vinnur á laugardögum í Heilsumiðstöð Reykjavíkur og hægt er að bóka tíma hér,  hafa samband í tölvupósti eða í síma: 895 -1618.

Ásdís hefur einnig lokið námskeiði hjá Gus de la Querra hjá The Body Rewired sem heitir Simply Vagus þar sem unnið er að koma jafnvægi á eina stærstu taug líkamans Vagus taugina. https://www.thebodyrewired.com/

Viðfangsefni sem hún hefur unnið meðal annars með:

  • Langtímaverki
  • Almennan stirðleika
  • Klemmda taug
  • Streitu og spennu
  • Verki í mjöðmum
  • Skerta hreyfigetu í öxlum
  • Höfuðverk
  • Bjúg
  • Staðbundna verki
  • Axlarverki
  • Vandamál/verkir í stoðkerfinu
  • Meltingartruflanir
  • Bakverki
  • Almenna vanlíðan
  • Kvíða
  • Vinna með börnum

Reynslusögur

Ég finn mikinn mun á mér eftir að hafa verið í Bowen hjá Ásdísi. Bæði andlega og líkamlega.

Ég fann sláandi mun eftir hvert skipti hjá henni hvernig losnaði um spennu í öllum líkamanum og ég varð öll léttari á mér.

Eftir tvær brjósklosaðgerðir hef ég glímt við eftirverki og þreytu í mjóbaki og niður með öðrum fæti. Ég er allt önnur og finn varla fyrir því núna. Eins hafa verkir og spenna í ökklum og ristum sem hrjáðu mig mikið alveg horfið.

Ásdísi tekst svo á undraverðan hátt að losa um kvíðahnút sem ég burðast stundum með og mér líður alltaf ótrúlega vel eftir tíma hjá henni og finnst ég svífa út.

-Kolbrún Kristjánsdóttir-

Þjónusta Viðbót: