Kinetic chain release
KCR Kinetic Chain Released er hannað til að koma líkamanum í jafnvægi og laga líkamsstöðuna. Meiðsl eða röng líkamsstaða til langs tíma skapa vana í því hvernig vöðvarnir halda líkamsstöðunni, oft á þann hátt að það togar háls, hrygg og mjaðmagrind úr jafnvægi. Með fyrirfram ákveðinni röð af teygjum og hreyfingum hjálpum við líkamanum að komast í sitt náttúrulega vöðva- og stoðkerfisjafnvægi sem oft dregur úr aðstæðum sem valda verkjum og óþægindum.