MEÐFERÐARAÐILI

Þjónusta

Bowen / P-DTR

Bowen / P-DTR meðferð

60 min 14000 kr Bókaðu núna

Bowen fyrir ungabörn

60 min 0 kr Bókaðu núna

Jórunn Símonardóttir

Jórunn Símonardóttir er meðferðaraðili með 15 ára reynslu og vinnur hún mest megis með taugakerfið og bandvefinn.

Jórunn vinnur bæði með Bowen og P-DTR -meðferðina í bland sem og í sitt hvoru lagi.

Bæði Bowen og P-DTR eru mjúkar meðferðir sem vinna með taugakerfið og bandvef líkamans 


Árið 2013 kláraði Jórunn kennaranám C.B.S í Bretlandi og tók í framhaldi við kennslu á Bowen á íslandi.

http://thebowentechnique.com

hæfni:

Bowentæknir
P-DTR meðferðaraðili

http://www.bodyfix.is

C.B.S Bowen kennari á Íslandi

http://bowenskoli.is

Reynslusögur:

Ég var orðinn kraftlaus í annari hendinni gat ekki lengur haldið utan  um neitt eða kreppt hana almennilega, læknarnir sögðu mér að prufa að  fara í sjúkraþjálfun og ætluðu svo að athuga mig eftir árið hvort ég  væri búin að ná einhverjum krafti í hana þá.
Daginn eftir bowen-meðferðina hjá Jórunni var ég komin með fullan kraft í hendina og gat kreppt hana á ný.
Svavar Kærnested 87 ára

 

Ég var vanur að fara til kírópraktors a.m.k einu sinni í viku til að  halda bakverkjunum niðri var búin að gera það í þrjú ár samfleytt þegar  ég kynntist bowen hjá Jórunni eftir þrjú skipti fann ég ekki fyrir  bakverkjunum.
Núna mæti ég á 6 mánaða fresti til að fyrirbyggja að ég versni á ný.
Ari Karlsson 31 ára

 

Ég fékk mígreniskast svona tvisvar til þrisvar í mánuði sem voru svo  slæm að ég þurfti oft að vera frá skóla í tvo daga, lá bara og át  töflur, núna fer í ég bowen til Jórunnar á sex mánaða fresti í eitt  skipti í bowen og er alveg hættur að fá köst
Kristófer Kristófersson 16 ára

 

Var búin að vera með asma síðan ég var 15 ára gömul, og alltaf á  lyfjum. Fékk ótrúlegan bata hjá Jórunni eftir 3 skipti í bowen og hætti á  lyfjunum
Maureen Patricia Clark 40 ára

 

Var með frjóofnæmi og hélst illa útivið á sumrin nema taka  ofnæmistöflur á hverjum degi. Eftir nokkur skipti í bowen hef ég hætt  allri notkun á ofnæmislyfjunum og klippi runna og slæ gras á þess að fá  ofnæmisviðbrögð. Fer svo reglulega í bowen til Jórunnar til að  fyrirbyggja að ofnæmið komi aftur.
Jón Gunnar Hauksson  33ára

 

Ég var slæm í baki og búin að vera með stöðugar hellur í 8 mánuði  eftir bowenið hvarf bæði bakverkurinn og hellurnar og nú skelli ég mér  stundum á bekkinn til Jórunnar fyrir keppnir
Rut Sig 37ára

 

Ég var búin að vera slæm í bakinu í nokkurn tíma þegar mér var bent á  Jórunni. Ég fór í tvo tíma og fann ekki mikinn mun og vildi komast í  nudd. Fór í þriðja tímann frekar neikvæð og sagði að þetta væri síðasti  tíminn minn og eftir það ætlaði ég að fara í nudd, þráði að lagast. Nú  þriðji tíminn hafði þau áhrif að ég hef ekki fundið til og ekki farið í  nudd. Mæli eindregið með þessari tækni og Jórunni.
Guðrún Jónsdóttir

 

Ég hafði verið með verk að aftan,þessi verkur hafði verið í tæp 2 ár  og búinn að þjaka mig mikið. Ég var búinn að fara í ca 20 tíma í  sjúkraþjálfun með tilheyrandi kostnaði og eins og sjúkraþjálfarar segja  alltaf. “Hvíla, hvíla, hvíla” en ekkert lagaðist. Læknir sem ég fór til  sagði mér að hvíla og gaf mér einhver lyf, sama sagan enginn árangur.

Svo fór ég til Jórunnar og hún byrjaði að pota í mig, eins og ég vil  orða það ; ) Þegar ég lá á bekknum hjá henni í fyrsta tímanum fannst mér  þetta pot hennar ansi tilgangslaust og munaði engu að ég færi í miðjum  tíma. En viti menn eftir tímann var verkurinn nánast farinn og ég sem  hafði verið haltur þegar ég kom til hennar gekk nánast eðlilega frá  henni. Hún tók mig síðan þrisvar sinnum og ég var alheill. Fékk nokkrar  æfingar og teygjur í heimanám og hef verið góður í síðan.
Bjarni Gaukur

 

Það er á kristaltæru að þetta er meðferð sem þrælvirkar. Ég hafði  fundið fyrir eymslum í baki en eftir tímann í sérlega góðu andrúmslofti  hjá Jórunni er ég allt annar maður og hika ekki við að fara aftur ef  eitthvað bjátar á.
Ægir Rafnsson

 

Ég hef sjaldan verið betri i kroppnum þökk sé bowen og Jórunni,mæli alveg hiklaust með þessu.
Guðmundur Helgi

 

Þegar Siggi sonur minn sem var þá sirka fimm mánaða og búin að vera  með nokkurra daga meltingarstíflu sem varð til þess að maginn hans varð  grjótharður, leitaði ég ráðalaus móðirin til Jórunnar sem tók drenginn í  bowen meðferð. Skemmst er frá því að segja að meltingin komst í lag  samdægurs og hefur ekki verið vandamál síðan. Við eigum bowen og Jórunni  mikið að þakka.
Matthea Sigurðardóttir

 

Ég er með vefjagigt og slitgigt sem og mjög svo furðulega hendi, ég  fór í bowen til Jórunnar nokkrum sinnum og í fyrsta tímanum fannst mér  hún gera “fullt af engu” en svo var ekki smile Ég fann mun á hendinni  sem og öllum þeim verkjum sem höfðu hrjáð mig til margra ára smile

Einnig langar mig til að benda á að eitt skiptið kom drengurinn minn  með mér í tíma þar sem hann var ekki í frístund þann daginn og hann  talaði um það eftir tímann hversu gott þetta hefði verið og spurði:  “Mamma hvernær ferðu að hitta konuna aftur og má ég koma með þetta var  svo gott”
Theodóra Arndís Berndsen

 

Ég hafði verið slæm í öxlinni, svo slæm að ég gat ekki verið í  öryggisbelti því það liggur að öxlinni. Fór í Bowen til Jórunnar og á  leiðinni heim gat ég notað öryggisbeltið, fann ekki fyrir neinum  óþægindum
Þyri Sölva

 

Ég á eina átta vikna dömu sem byrjaði um þriggja vikna aldurinn með  þessa yndislegu magakveisu, voru komnar þarna þrjár vikur alveg straight  sem litla krílið grét sáran öll kvöld og við foreldranir labbandi um  gólf eða vaggandi í vagni eða rúntandi á bílnum til að sefa litlu  dömuna, keyptir voru allir dropar á markaðnum og farið eftir öllum ráðum  með mataræðið (er með á brjósti ) og komið út í það að ég (mamman)  þorði bara ekkert að borða lengur. Einn daginn í minni venjulegri  rúntferð um netið, (Blandið) tók ég eftir að konur voru að tala um  Bowenmeðferð, aldrei hafði ég heyrt um þetta en tilbúinn að prufa allt,  setti mig í samband við Jórunni og hún bauð mér strax að koma. Tveim  dögum seinna er ég mætt með litlu, ekki vitandi hvað ég væri að fara  útí, myndarleg og góðleg kona tók á móti mér og tók litlu í fangið sitt  og vann með hana ljúflega, þetta tók um svona fimm mínútur og svo  kvöddum við Jórunni. Þegar ég kom heim þá var ég nú svoldið efins þar  sem sú litla grenjaði með ekkasogum í bílnum, kom heim og setti hana í  vagninn og hún steinsofnaði. Dagurinn leið og kvöldið nálgaðist og ég  varð orðinn stressuð, ég vissi hvað beið mín, grenjandi kríli í tvo til  fjóra tíma, en svo gerðist það sem ég bjóst ekki við, sú litla sofnaði  bara, og vaknaði ekki fyrr en um nóttina til að drekka, og svona hélt  þetta áfram, kveisan gufaði upp og ég fékk litla væra stelpu. Ég ákvað  nú samt að fara einu sinni enn með hana var að fara norður til ömmunar  og var smeyk um að sú litla myndi taka upp kveisuna aftur ,Jórunn bauð  mér aftur og það var greinilegt að þeirri litlu leið vel hjá henni.Í dag  á ég litla,væra snót sem er pollróleg alla daga og öll kvöld og allar  nætur,eg lít á Jórunni sem ponsu galdranorn, góða galdranorn sem tekur  ungbörn frítt bara til að hjálpa og lina sársaukann, ég mæli eindregið  með henni og stend með því,
Takk fyrir kv Eyrún Gísladóttir.

 

Var búin að vera með blöðrubólgu mjög reglulega í 9 ár. Hef tekið  allar tegundir af sýklalyfjum og talað við marga lækna. Einnig missti ég  reglulega úr skóla og vinnu. Eftir þrjú skipti hjá Jórunni hef ég ekki  fundið fyrir neinum blöðrubólgu einkennum og ekki misst einn dag úr  vinnu.
Svava Hildur 25 ára

 

Þessi meðferðarfræði er með ólíkindum, gerir manni ótrúlega gott, bæði andlega og líkamlega, kærar þakkir fyrir mig Jórunn!

Allan Ragnars
Bowen hefur bjargað mér
og bætt úr öllum meinum
Ljósi Jórunn lýsir hér
Það líkist göldrum einum
Með þökk fyrir mig kv.Svandís

 

Ég held að þessi kona hún Jórunn sé galdrakona,þó ætlast ég ekki til  að hún verði brennd á báli heldur fái fleiri tækifæri til að fá lækningu  hjá henni. Gangi þér sem best kona góð
Inger Helgadóttir

 

Dóttir mín var mjög óvær strax frá fæðingu, hún var rosalega spennt  öll og stíf. Hún svaf mjög lítið, nær ekkert allan daginn og ef hún  sofnaði var hún vöknuð strax aftur. Hjúkrunarfræðingurinn frá  ungbarnaverndinni taldi að hún væri mögulega með hryggskekkju. Þegar hún  var svo þriggja vikna fór ég með hana til Jórunnar og strax í tímanum  sá ég hvernig hún slappaði af og virtist líða strax betur. Þennan fyrsta  sólahring eftir Bowen meðferðina sáum við foreldrarnir undraverðan mun,  hún varð miklu rólegri og svaf loksins vært. 3 dögum seinna fór ég svo  með hana til læknis og bakið var í lagi. Viku eftir tók Jórunn hana svo  aftur og stúlkan mín er orðin svo afslöppuð og fín eins og ungabörn ættu  að vera. Bestu þakkir fyrir okkur!
Heiða Hrönn

 

Ég fór í hnéaðgerð og sterk verkjalyf dugðu ekki svo ég fann stöðugt  til og náði varla að sofa fyrstu vikuna nema mjög óreglulega. Ég hafði  litla trú á BOWEN en var til í að prófa það.

Jórunn gerði Bowen á mér og notaði jafnframt ljósið. 10 mínutum eftir  meðferðina hurfu verkirnir og ég svaf alla nóttina til morguns. Jórunn  er næm og hefur góða nærveru og er mjög umhugað um sína sjúklinga.
Þorsteinn Gunnarsson 66 ára.

 

Ég leitaði til Jórunnar því ég var með stöðuga verki í mjóbaki. Mér  fannst ég strax finna mun á mér. Eins náði ég einstakri slökun í tímunum  sem hjálpaði mikið við vöðvabólgu sem ég hafði glímt við lengi.
Nína Arnbjörnsdóttir

 

Ég hef lengi verið slæm í fótum og allmennt með verki í skrokknum, ég  sá auglýsingu um Bowentækni hjá Jórunni og ákvað að skella mér á tíma  og sé sko ekki eftir því. Jórunn er bara frábær eftir fyrsta tíma sýndi  ég miklar skapsveiflur heima fyrir og fann svo mikinn léttir eftir á. Ég  talaði um það við hana í öðrum tíma og tjáði hún mér það að hún hafi  verið að vinna með tilfinningarnar mínar.

Ég hef mjög gaman að því að dansa en hef átt mjög erfitt með það í  langann tíma og hefur það farið versnandi ,eftir tvö skipti í bowen hjá  Jórunni fór ég á ball og dansaði í a.m.k. þrjá tíma nær stanslaust það  var sama hvort ég tjúttaði, dansaði gömlu dansana eða línudansa ég fann  ekkert til í fótunum og ekki einu sinni daginn eftir sem var mjög  óvenjulegt. Mig hlakkar til að mæta í næsta tíma og ætla mér að vera  reglulega hjá henni .
Halldóra M Gunnarsdóttir 56 ára

 

Ég er buin að vera bara rosalega góð síðustu vikur sidan ég kom frá  bowen timanum, verkirnir i hnjánum eru næstum því horfnir og i bakinu er  ég lika ordin mjög góð, smá verkir stundum, ég er samt að passa mig að  gera réttar beygingar. takk fyrir þína æðislegu vinnu Jórunn,
Barbara Plesec, 45 ára

 

Ég tognaði í nára fyrir 20.árum og tók ekki eftir því að ég var hætt  að hreyfa mjöðmina var að stirðna upp og hreyfigeta orðin 15%. Fyrir  tveim árum reif ég liðþófa í hné og þá sýnir læknirinn mér að þetta sé  líklega ástæðan fyrir hvernig fór fyrir liðþófanum, á meðan ég er að  bíða eftir aðgerð þá var ég hjá sjúkraþjálfara sem reyndi að liðka  mjöðmina ásamt öðru . Okkur tókst ekki nógu vel með mjöðmina og var ég  meira meðvituð um verki sem leiddu út frá henni. Ég datt niður á Jórunni  og fór í 3 tíma og eftir 2 tíma labbaði ég út frá henni og haltraði  ekki eins og ég hef gert í mörg ár en ég hafði ekki tekið eftir að ég  haltraði, en mitt fólk tók strax eftir að ég labbaði flott og voru hissa  og hafa spurt hvað gerðist. Nú er Verkurinn farinn og mér líður vel.
Takk fyrir mig. Herdís

 

Ég datt heima hjá mér niður stiga og brákaði rófubeinið. Læknirinn  sagði að ég væri lengi að ná mér og taka ætti bæði bólgueyðandi og  verkjalyf.Út af þessu ætlaði ég að afpanta tíma í Bowen en eftir símtal  við Jórunni og hvatningu frá henni að sleppa EKKI tímanum fór ég í  meðferðina.Strax næsta dag fann ég mikinn mun á mér. Ég gat miklu betur  hreyft mig og eftir tvo daga þurfti ég ekki lengur að taka verkjalyf.
Elke Gunnarsson

 

Stelpan okkar var búin að vera óróleg í fleiri nætur og tók bara  stutta lúra á daginn. Hún virtist oft kvalin og grét oft. Við vorum  sannfærð um að þetta væri þessi klassíska magakveisa sem oft kvelur  lítil kríli. Eftir ýmsar árangurlausar tilraunir til að hjálpa stelpunni  okkar römbluðum við inn á spjallþráð þar sem talað var um Bowen. Eftir  að hafa skoðað betur og rætt við fleiri kom í ljós að margir í kringum  okkur hefðu nýtt sér þessa tækni til að ná bata og þá náð skjótum  árangri. Við höfðum því samband við Jórunni og fengum tíma hjá henni.  Strax eftir fyrsta tímann í Bowen meðferðinni varð stelpan okkar allt  önnur og sýndi mikil batamerki. Hún sofnaði strax í bílnum á leiðinni  heim og svaf lengur en vanalega. Við héldum því áfram að fara með hana  er í þrjú önnur skipti. Í dag er stelpan okkar laus við magakveisu og  sefur vel.

Við mælum 100% með Bowen meðferðinni og Jórunn kann sitt fag. Við  erum ævilega þakklát fyrir Jórunni og hennar meistara tækni í faginu.

Kæra Jórunn, takk fyrir aðstoðina.
Kveðja Geir og Tinna

 

Ég var búinn að vera hjá kírópraktor í rúm 2 ár útaf verkjum í baki  þegar ég rakst á auglýsingu á facebook frá Jórunni, ákvað að láta vaða  og sé ekki eftir því,fór í 3 tíma og er hættur hjá kírópraktornum..!  Jórunn er mikill snillingur, mæli eindregið með bowen og sérstaklega hjá  Jórunni..:)
Tobbi 34.ára smiður 

 

Það að komast í bowen hjá Jórunni er alveg frábært og hún er búin að  bjarga mér mjög oft þegar ég er orðin mjög slæmur í skrokknum
Hilmar Páll Jóhannesson 40 ára

 

“ég fór í bowen til Jórunnar og þið vitið þegar viftan er búin að  vera í gangi í smá tíma og maður hálfgert er hættur að taka eftir  hávaðanum en svo slekkur maður á apparatinu og þá kemur þvílík kyrrð  yfir …einmitt þannig leið mér eftir bowentíman, ég mæli eindregið með  stelpunni”
Herbert Guðmundsson

 

Ég var búin að vera slæm í fótunum í nokkurn tíma þegar mér var bent á  Bowen hjá Jórunni. Ég fór í tvo tíma og fann ekki mikinn mun. Fór í  þriðja tímann ákveðin í að þetta væri síðasti tíminn minn en þá fann ég  batann koma einhvern vegin til mín. Ég hef ekki fundið til í fótunum og  er öll miklu betri eftir að Jórunn kenndi mér að gera léttar æfingar til  að styrkja mig. Mæli eindregið með þessari tækni og Jórunni.
Sigrún Hilmarsd.

 

“Dóttir mín var óvær fljótlega eftir fæðingu sem versnaði bara. Hún  var með þessa svokölluðu “ungbarnakveisu” sem virtist byrja frekar  snemma og þó hún væri verst á kvöldin/næturnar þá var alltaf pirringur í  henni og erfitt að leggja hana frá sér. Hún var því mikið á handlegg  þegar hún var vakandi og erfitt var að svæfa hana en það þurfti mikið  “rugg” eða ganga um gólf. Hún var mjög stíf og spenna í henni af  magaverkjum og gerði það að verkum að hún átti erfitt með að slaka á til  að sofna. Ég hafði heyrt af Jórunni og langaði til að prófa. Ég hafði  samband við hana og fékk að koma með stuttum fyrirvara til hennar.  Jórunn sagði mér að sum börn þyrftu fleiri en einn tíma og þar sem ég sá  engan mun eftir fyrsta skiptið ákvað ég að hafa samband við hana aftur.  Hún bauð okkur að koma aftur. Þess má einnig geta að dóttir mín hafði  ekki haft hægðir í marga daga og var farið að líða verulega illa af því  auk kveisunnar. Eftir seinna skiptið hafði dóttir mín hægðir lengst uppá  bak um kvöldið og einnig daginn eftir. Eftir þetta var eins og  meltingin kæmist í lag og varð þetta ekki meira vandamál. Dóttir mín sem  þá var að verða 2 mánaða varð allt önnur, henni leið orðið mikið betur  og ég gat lagt hana í ömmustól og leikteppi án þess að hún gréti þar.

Kærar þakkir fyrir okkur  “
Með kveðju,
Steinunn Sævarsdóttir

 

Er að koma úr stuttum hröðum göngutúr. Það hef ég ekki getað í 20 ár.  Hreyfigeta axlanna hefur ekki verið eins góð og í dag í 10 ár. Þetta  hefur gerst eftir 3 tíma í afslöppun hjá Jórunni. Samspil taugakerfis og  líkama er lítið kannað. Enn er verið að kortleggja heilann eins og  nóblelsverðaun í læknisfræði 2014 vitna um. Maður veit lítið um  ósjálfráða taugakerfið og áhrif þess á líkamann. Jórunn er ein af þeim  sem virðast skilja meira um þetta en stendur í bókum.
Bestu kveðjur,
Guðni Stefánsson

 

Þjónusta Viðbót: