Quantum Wave Laser er alveg nýr af nálinni og hjálpar mér að vinna dýpra og árangursríkara með skjólstæðingana mína. Ljóstíðnitækið finnur leið fyrir fóllk til að hjálpa líkamanum að heila sig sjálfan í gegnum slökun og endurnýjun eðlilegs orkuflæðis um vefi líkamans. Ljóstíðnitæknin hefur verið notuð til lækninga í yfir 30 ár og er mjög vel þekkt af læknum, dýralæknum, tannlæknum og sjúkraþjálfum svo eitthvað sé nefnt.
Ljósmeðferðin virkar á svipaðan hátt og sólarljósið sem skín á plönturnar og gefur þeim fótónur sem hvetur plöntuna til að vaxa hraðar og betur. Eins er það með frumur líkamans að þær drekka í sig þessar fótónur sem svo endurnýja vefi og frumur.
Fyrir hvern er ljóstíðnimeðferð
Meðferðin hentar fólki á öllum aldri og virkar mjög vel fyrir ónæmiskerfið, hvetur það til að snúast hraðar.
Raf-segull og ljóseindir er orka sem líkaminn þekkir og nýtir sér hratt og vel til að endurnýja frumur, slaka á streitu og setja orkuflæði líkamans í jafnvægi.
Hraðinn í lífi okkar í dag gefur ekki of mörg tækifæri til vera í jafnvægi eða ná jafnvægi. Mikill harði og aðrar truflanir valda streitu í líkamanum og er ljóstíðitækið frábært tæki til að jafna út streituástand hratt og vel.