MEÐFERÐARAÐILI

Þjónusta

BOWEN

Bowen

60 min 12000 kr Bókaðu núna

Bowen fyrir ungabörn

60 min 0 kr Bókaðu núna

Ásdís Björg

https://www.thebodyrewired.com/Ásdís Björg Jóhannesdóttir vinnur sem Bowentæknir en hún lauk námi frá College of Bowen Studies (2021) undir leiðsögn frá Jórunni Símonardóttur og hefur unnið í Heilsumiðstöð Reykjavíkur síðan í apríl 2021.

Hún hefur mikinn áhuga á öllum heilsutengdum málefnum og mataræðistengdum vandamálum og leitast við að finna lausnir fyrir hvern og einn á heildrænan hátt.

Ásdís vinnur á laugardögum í Heilsumiðstöð Reykjavíkur og hægt er að bóka tíma hér eða hafa samband á tölvupósti

Viðfangsefni sem hún hefur unnið meðal annars með:

  • Langtímaverki
  • Almennan stirðleika
  • Klemmda taug
  • Streitu og spennu
  • Verki í mjöðmum
  • Skerta hreyfigetu í öxlum
  • Höfuðverk
  • Bjúg
  • Staðbundna verki
  • Axlarverki
  • Vandamál/verkir í stoðkerfinu
  • Meltingartruflanir
  • Bakverki
  • Almenna vanlíðan
  • Kvíða
  • Vinna með börnum

Reynslusögur

Ég finn mikinn mun á mér eftir að hafa verið í Bowen hjá Ásdísi. Bæði andlega og líkamlega.

Ég fann sláandi mun eftir hvert skipti hjá henni hvernig losnaði um spennu í öllum líkamanum og ég varð öll léttari á mér.

Eftir tvær brjósklosaðgerðir hef ég glímt við eftirverki og þreytu í mjóbaki og niður með öðrum fæti. Ég er allt önnur og finn varla fyrir því núna. Eins hafa verkir og spenna í ökklum og ristum sem hrjáðu mig mikið alveg horfið.

Ásdísi tekst svo á undraverðan hátt að losa um kvíðahnút sem ég burðast stundum með og mér líður alltaf ótrúlega vel eftir tíma hjá henni og finnst ég svífa út.

-Kolbrún Kristjánsdóttir-

Þjónusta Viðbót: