Fréttir

Námskeið í svæðanuddi

Langar þig að læra aðferð til að ná fram slökun og vellíðan, auka orkuflæði líkamans og getað hjálpað þínum nánustu við að minnka eða losna við verki. Þá gæti þetta námskeið verið eitthvað fyrir þig.
helgina 19. - 20 mars 2022 verður haldið námskeið í svæðanuddi í Heilsumiðstöð Reykjavíkur.
--
Skráningar eða nánari upplýsinga á magga4dis@gmail.com
eða í síma 846 0064
--
***Námskeið í svæðanuddi***
Helgina 19. - 20 mars 2022 verður haldið námskeið í svæðanuddi í Heilsumiðstöð Reykjavíkur.
Námskeiðið byggir aðallega á verklegri kennslu en einnig verður farið yfir hugmyndafræðina á bak við svæðameðferð og útskýrt hvernig hægt er að hafa áhrif á öll líkamskerfin í gegnum iljar, rist og ökkla.
--
Í verklegri kennslu verður lögð áhersla á svæði til að:
* Ná slökun og auka orkuflæði og vinna á:
* Höfuðverkjum
* Bakverkjum
* Meltingarvandamálum
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja að læra að nota svæðameðferð á sjálfan sig, vini og ættingja en gefur engin réttindi til að nota aðferðina í atvinnuskyni.
--
Í svæðameðferð er sérstakri nuddtækni beitt á fætur til að hafa áhrif á tiltekna líkamsstarfsemi, til að ná fram slökun og vellíðan, auka orkuflæði líkamans og styrkja hann til sjálfshjálpar.
Hámarksfjöldi er 12 manns.
Kennari: Margrét Einarsdóttir
nuddari og meistari í svæða- og viðbragðsmeðferð.
Tími: Laugardagur 19. mars 9:30- 14:30
og sunnudagur 20. mars 9:30 - 13:00
--
Staðsetning: Heilsumiðstöð Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 30
Verð: 25.000
--
Farið er fram á 10.000 kr staðfestingargjald
sem er lagt inn á reikn 526 26 8460.
Kt. 520816-1510
--
Margrét Einarsdóttir hefur starfað sem nuddari í 30 ár.
Hún útskrifaðist sem meistari í svæða- og viðbragðsmeðferð 1999 og hefur síðan þá sérhæft sig í því meðferðarformi.