BOWEN

Bandvefslosunarmeðferð

Í Bowenmeðferð eru notaðar léttar, rúllandi hreyfingar. Þær hafa áhrif á mjúkvefina sem aftur senda merki til heilans.
Það er orðið viðurkennt í vísindum 21. aldarinnar að Bowenmeðferð stuðlar að jafnvægi líkamans þó að hún sé algjörlega laus við nudd eða þvingaða meðhöndlun.
 
Hvernig fer meðferðin fram?
Hvert skipti tekur um það bil 60 mínútur. Meðferð hefst eftir viðtal hjá meðferðaraðilanum þínum og samanstendur af sérhæfðum, léttum, rúllandi hreyfingum yfir mjúkvefjum líkamans og það má vera í fötum. Ákveðin gerð af hléum eru hluti af meðferðinni. Meðferðarþeginn hvílist á meðan á þeim stendur og líkaminn fær tækifæri til að ná nýju jafnvægi.
Venjulega finna meðferðarþegar samstundis mun til batnaðar.
Flestir sýna svörun innan 48 klst.
 
Lágmarksmeðferð eru þrjú skipti með 5-10 daga millibili. Til að fá hámarks virkni í Bowen-meðferðinni er mælt með að vera ekki í annarri líkamlegri meðferð, hvorki í vikunni á undan né eftir, þó er í lagi að vera í lyfjameðferð, næringarmeðferð eða líkamsþjálfun og öll hreyfing eykur árangur.
 
Við hverju er vitað að Bowen hafi gert gagn?
Langtímaverkjum, íþróttameiðslum, bráða- og langtímaverkjum í baki, staðbundnum verkjum, settaugarbólgu, frosnum öxlum og tennisolnboga, hálshnykkjum, óþægindum í kjálkum (e. TMD / TMS), frjókornaofnæmi, höfuðverkjum / ennisholubólgum, streitu og spennu, meltingartruflunum, síþreytu, verkjum í hælum og fótum..

Verð fyrir þjónustu

Bowen

60 min 12000 kr Bókaðu núna

Bowen fyrir ungabörn

60 min 0 kr Bókaðu núna