Tælensk nudd

Endurnýjar líkama og huga

Tælenskt nudd

Tælenskt nudd er aldagömul meðferðaraðferð sem sameinar þrýstipunktanudd, teygjur og markvissa vinnu með stoðkerfi líkamans. Meðferðin miðar að því að losa um spennu í vöðvum og liðum, bæta hreyfigetu og stuðla að betra jafnvægi og vellíðan.

Í meðferðinni er unnið með sérstaka þrýstipunkta og orkubrautir líkamans samkvæmt hefðbundinni tælenskri nuddtækni. Markmiðið er að örva náttúrulegt flæði líkamans, draga úr stífleika og stuðla að slökun og aukinni orku.

Tælenskt nudd hentar vel þeim sem glíma við vöðvabólgu, stífleika, streitu eða vilja einfaldlega slaka á og endurnýja líkama og huga.

Verð fyrir þjónustu

Tælenskt nudd

60 min 16000 kr Bókaðu núna
90 min 24000 kr Bókaðu núna